Kuldaskastið í lok maí

 

Íslenska veðráttan er alltaf söm við sig. Þessar fáu plöntur sem eru svo lífsseigar að geta tórt á þessu skeri vakna til lífsins í lok apríl og byrjun maí. Það kemur gott veður, sólin er hátt á lofti og allt virðist vera í himna lagi. Þá kemur þessi hefðbundni kuldakafli eftir miðjan maí sem stendur oft fram undir 17. júní. Maður er alltaf jafn bjartsýnn og fer að líta til sumarblómanna og aldrei lærir maður að aðeins þær allra sterkustu geta lifað af seinni hlutann af maí.

 Nonni var út á palli að reyna að vefja rósirnar í plast. Þær höfðu kalið næstum niður að rót en samt voru komin ný skot á þeim litlu stilkbútum sem lifðu af veturinn. Í gærnótt var næturfrost. Nonni fór út kl. 5 um nóttina og vætti plönturnar í von um að svolítil klakabrynja gæti bjargað þeim. Þær virðast enn lifandi og nú ætlar Nonni að sofa nóttina og nota plastpoka í stað vatnsins.

 Veðurglöggir menn á Dalvík sem spáð hafa bæði fyrir góða veðrinu og þessum kuldakafla segja að komið verði fram yfir sjómannadag áður en þessum ósköpum linnir. Ég veit að þessi frásögn gerir vini okkar í útlöndum bara ánægðari með lífið þar.  þeir fá þá síður einhverjar rómantískar hugmyndir um hvernig landið er.

 Stöð 2 bauð okkur með öllum börnum sem við gátum komist yfir í húsdýragarðinn. Við fórum með dætrum Gabríelu og Palla. Þrátt fyrir skíta kulda hvassviðri og 4 stig á C° Þá var allt fullt í garðinum. Allir vilja fá eitthvað fyrir ekkert. Ekki komust stelpurnar í nein alvöru tæki þær gátu farið út í víkingaskipið og leikið sér þar smá stund, gengið um garðinn í mannþrönginni og fengið kók og pulsu. Þetta var samt ágætt enda allir kapp klæddir. Eftir þetta fórum við heim og Sigga bakaði pönnukökur. Gabríela kom. Stelpurnar náðu að dreifa dóti um allt húsið og borða heilmikið og taka nokkra veiðimenn. (spilið) með sérstöku afbrigði. Þetta afbrigði er þannig að þegar allir slagirnir eru komnir þá má sá sem röðin er komin að geta sér til um slagi hinna. Geti hann rétt þá má hann reyna aftur. Geti hann ekki rétt má næsti reyna. Sá sem á enga slagi dettur út. Þarna reynir á minnið og þegar fækkar í hópnum auðveldast leikurinn. Sigurvegarinn stendur uppi með alla slagina. Það var mikill hlátur og gleði af þessum leik. Ekki gátu stelpurnar verið í mat. Við buðum þeim aftur á móti í grill á miðvikudaginn kemur.

 Við ætluðum með hana Hrafnhildi mömmu Nonna á kaffihús í dag eins og við gerum gjarnan á sunnudögum. Hún var svo slæm í bakinu að við sátum frekar með henni í stofunni.

Annars gengur lífið sinn vanagang. Við heimsóttum bæði hana Sísi sem er hárgreiðsludaman okkar og færði hún okkur þær slæmu fréttir að hún ætlar að búa í París í vetur og því verðum við að láta okkur nægja þá næst bestu  á stofunni.

 Við litum við hjá Kára og Guðrúnu eftir að hafa verið hjá mömmu Nonna og höfum eytt síðustu klukkustundum helgarinnar hér heima við skúríngar og afslappelsi. M.a. sáum við eina hugljúfa ameríska ástarmynd sem endaði VEL. og okkur líður vel á eftir.

 Í gær sáum við myndina Prime í bíó. Þá var Eurovision og aðeins tvenn hjón í salnum. Nonna fannst myndin ekkert æði. Sigga naut hennar betur. 37 ára kona skildi og kynntist 23ja ára manni og þau verða ástfangin. Ekki er það svosem í frásögu færandi nema hvað að strákurinn er sonur sálfræðings konunar. Sálfræðingurinn hefur ekki hugmynd um hver ástmaðurinn er og hvetur konuna til þess að njóta lífsins.  Að sjálfsögðu kemur sannleikurinn í ljós........ og svo og svo...

 

Jæja! Nóg í bili elsku vinir og ættingjar.

 

Ykkar vinir og ættingjar

 

Nonni og Sigga.  


Á inrásardaginn 10. maí 2006

 

Það var á þessum degi 1940 sem breskur her réðist á litla Ísland. Íslenskir karlmenn þurftu að þola samkeppni um konurnar sem margar hverjar þykja allt sem útlenskt er betra.

 Sem betur fór þá voru margar sem féllu ekki alveg fyrir þessu og þess vegna hefur Íslendingum haldið áfram að fjölga sem aldrei fyrr.

 Það er svo sem tíðindalaust hér á skerinu. Sólin hefur leikið við okkur, vorverkin eru á fullu. Nonni hefur verið að bera á pallinn fúavörn, ganga frá í bílskúrnum svona innansleikjur sem aldrei hafa verið kláraðar.  Þá er að sinna gróðrinum, klippa dauðar greinar og fær pottana á pallinum þannig að sólin leiki um plönturnar. Endanlegan stað fá þær svo þegar pallaolían þornar. Nonni hefur einnig verið að vinna myndir sem Halli tekur af fasteignum fyrir Remax. Á meðan hafa húsverkin verið á Siggu könnu.

Síðustu helgi fórum við í heimsókn til Sigrúnar og Ella og spiluðum eins ot stundum áður. Nonni lofaði Ella að segja ekki hvernig fór til að vera ekki að monta sig neitt. Sannleikurinn er sá að Nonni hefur oftast tapa.  

Við fréttum það í vikunni að breytingar væru í vændum hjá Sigurgeiri syni Nonna og hans fjölskyldu. Við látum þau segja sjálf nánar frá því sjá: Borgarholt.com.

Allt er annars gott að frétta og okkur og okkar. a.m.k. hvað við best vitum.

 

Elsku vinir og ættingjar

 Hafið þið það sem allra best. 

 

 

Nonni og Sigga.

 

 


Verkalýðsdagsblog

Í dag marseraði verkalýður landsins rúinn vígtönnum sínum og barðist fyrir fyrir bættum kjörum útlendinga sem kunna að villast til þessa kalda lands. Við Klettássfólkið höfum unnið hörðum höndum við tiltekt og vorverk á milli tíðra heimsókna í þetta hús.´Bílskúrinn þurfti viðamikla hreinsun eftir veturinn tjaran á gólfinu þurfti sterkustu efni myglublettir voru yfir dyrunum byrjaði Nonni á því að hreinsa og sparsla. Hann ætlar að mála myglustaðinn með Epoxy tveggja þátta gólflakki svo hamast megi á honum með lútsterkum sápulegi ef myglan vogar sér þar aftur. Þá hafa gestir komið Guðrún og Kalli - Sigrún og Elli, Hrefna og Guðjón, Kjartan og Dísa, Hrafnhildur mamma nonna  og fleiri. Þá fórum við í heimsókn til Auðuns, Súsönnu og Knúts Þórs eins og sést á myndabók tileinkuð þeim hér á vefnum. (Guðrún er systkinabarn við fyrri mann Siggu og maður hennar er Karl Bergman úrsmiður. Sigrún og Elli eru vinafólk okkar en Sigga kynntist Ella í félagsskap ekkla og fráskilinna, Hrefna er systir nonna og Guðjón er hennar maður - Kjartan er bróðir Nonna og Dísa hans kona.)

 Þetta hefur semsagt verið löng en einstaklega góð helgi.

Kæru vinir og ættingjar.

Hafið þið það alltaf gott.

Nonni og Sigga.


Allt í rólegheitum 27. apríl.

Lífið gengur sinn vanagang hér í Klettásnum. Veðrið er að verða skaplegt og stundum mjög fínt vorveður. Sumir hafa á orði að sumarið sé komið. Það er eins og menn muni aldrei að sumarið er aldrei öruggt fyrr en eftir 17. júní. Það er allan veturinn að koma og fara og verður það fram eftir þessu vori nú sem oftast áður. Gróðurinn sem var byrjaður að bruma á miðjum vetri hefur áttað sig á því að flas er sjaldnast til fagnaðar.  Í gær fimmtudag var saumaklúbbur og bridge. Nonni vinnur myndir fyrir Halla systurson sem hann tekur fyrir fasteignasölu. Fermingaralmbúmið hennar Árnýjar er nú loks tilbúið sjá myndir. Knútur litli hans Auðuns sonar Nonna fékk teppi frá Siggu eins og önnur nýfædd "fyrstubörn" í fjölskyldunni.

Elsku vinir og ættingjar

Við óskum ykkur alls hins besta

Nonni og Sigga.


Páskar 2006

12. apríl kom hann Knútur Þór Auðunsson í heiminn, fjórða afabarn Nonna. Hann kom alveg á óvart því hann átti að hvíla rólegur í móðurkviði í að minnsta kosti mánuð í viðbót. Hann var 11,5 mörk og 47 cm líklega stór miðað við fæðingartíma. Við vorum að fara til Dalvíkur með flugi rétt fyrir kl. átta um kvöldið. Nonni hafði pantað vöggu strax og fréttist að von væri á honum í heiminn fyrr en upphaflega var planað. Eftir vinnu var allt á seinustu stundu. Það þurfti að ná í vögguna, klæði á hana og koma henni til Höbbu systur Nonna auk þess að sem það þurfti að snúast ýmislegt fyrir ferðina og pakka niður. Allt gékk þó upp nema að sjá Knút litla sem þá þegar hafði verið nefndur.

 Við fórum í fermingu á Dalvík. Árný dóttir Hermínu dóttir Ásu systur Siggu var fermd á skýrdag. Nonni tók að sér myndatöku bæði af undirbúningi veislunnar og í veislu og fermingu. Börn Hermínu eru auk Árnýjar þau Breki og Agla. Þau ásamt fjölskylduföðurnum Arnari búa í Hamborg. Börnin eru miklir tónlistarsnillingar og léku á fiðlur og frænka þeirra lék á lágfiðlu. Fermingarbarnið lék í messunni sígilt verk með undirspili á orgel. Þetta var hægt þar sem hún fermdist ein og um almenna guðþjónustu var að ræða.

 Nonni tók mikið magn mynda og á eftir að vinna úr þeim. Hann skilar þeim af sér í almbúm sem hann lætur gera hjá erlendu fraköllunarfyrirtæki (shutterfly.com).

Það er eins og áður þegar við förum til Dalvíkur. Matarveisla eftir matarveislu. Systkini Siggu tjalda því besta fyrir okkur. Við gistum hjá foreldrum Siggu í góðu yfirlæti. Annars stunduðum við hannyrðir (Sigga) bókalestur um myndvinnslu og bíla (Nonni) göngutúra og afslappelsi.

 Það skyggði að vísu á annars ágæta páskahelgi að Jónína ein besta vinkona Siggu á Ísafirði lést á föstudaginn langa. Þetta kom að vísu ekki á óvart - vitað var að hverju stemdi en hún hafði barist við krabba í 11 ár með góðu hléi þó. Nú erum við búin að panta miða vestur en Jónína verður jörðuð á laugardaginn kemur.

 Þegar við komum heim var eitt af okkar firstu verkum að líta á Knút Þór. Alltaf verður afahjartað meirara og meirara með aldrinum og er ekki frá því að Nonni hafi vatnað músum. Ekki mátti nema annað okkar vera hjá honum í einu og héldum við honum bæði. Nonni tók tvær myndir og hefði tekið fleiri ef ekki hefði þurft að taka tillit til fleiri fyrirbura á staðnum.

Elsku vinir og ættingjar

Þakka fyrir að fylgjast með okkur og hafið þið það alltaf sem best.


Miður mars

Við skruppum til Selfoss í gær. Veðrið var gott, rétt innan við 10 stig og hálfskýjað. Þegar við komum til baka var þoka yfir öllu hér í Reykjavík og er henni rétt að létta. Stefnir í kulda og trekk eins og alltaf verður þegar fer að hitna á meginlandi Evrópu.

 Vinkona Siggu frá Ísafirði tók okkur í höfuðbeina og spjaldhryggsmeðferð og var því dagurinn algjör dekurdagur. Farið héðan rúmlega 11, borðað á SubWay og síðan nudd og lúr fram eftir degi.

Eftir spaugstofuna kom hemmi gunn þá kom bíomynd og síðan settum við DVD disk í. Sjaldgæft hjá okkur að eyða heilu kvöldi barasta í sjónvarpið en allar reglur hafa undantekningar.

 Nú er Sunnudagur og kl. er 13:30. Sigga hefur verið í vinnu í morgun en Nonni hefur verið að leysa krossgátu, skoða myndir sem Halli systursonur Nonna var að setja á vefinn http://apt.mbl.is/~snorri/halli/    oþl. Nú förum við með Hrafnhildi mömmu nonna á kaffihús.

Bless í bili kæru vinir og ættingjar

Nonni og Sigga.


Nýr staður - gamla bloggið

Elsku vinir og ættingjar.

 Þið eruð núna komin á nýju síðuna okkar Nonna og Siggu. Það var hún þórunn í Austurkoti sem benti okkur á að myndir væru hættar að sjást á www.folk.is Við höfðum að vísu ekkert margar myndir en það er ófært að sleppa þeim og þess vegna skiptum við um stað. Ég veit ekkert hvort við verðum duglegri eða latara eða barasta alveg eins dugleg að blogga eftir breytinguna. Við lofum bót og betrun og svo sjáum við til

Nonni og Sigga.


Miður mars 2006

Nonni fór í ljósmyndaferð með Steina vini sínum á laugardag og kom aftur á sunnudag. Þeir fóru fyrst í Kerlingafjöll og síðan í Hveradali. Veðrið lék við hvern sinn fingur og náði Nonni vetrarmyndum sem hann er mjög ánægður með.

Fyrir ferðina höfðum við bæði verið lasin, fyrst Sigga og Síðan Nonni og var hann ekki alveg búinn að ná sér. Hann hristi af sér slenið í ferðinni.

Nonni var með mynd á sýningu í Kringlunni á vegum Fókus ljósmyndaklúbbsins og hefur tilkynnt þátttöku í síningu í ráðhúsi Reykjavíkur undir heitinu Fegurð í Fókus.

Nonni er einnig að taka myndir fyrir Blindrasýns sem er fylgirit Morgunblaðsins.

Nanna systir Stjána heitins (fyrri manns Siggu) átti afmæli um daginn. Sigga kom með veitingar í veisluna og hjálpaði til við undirbúninginn.

Í dag 10. mars komu Auðunn sonur Nonna og Súsanna tilv. tengdadóttir Nonna í mat. Súsanna er orðin all myndarleg enda á hún von á barni í maí. Sigga galdraði fram hollusturétti úr ýsu, aðeins notuð hollustuefni og smakkaðist æðislega.

Annnars allt gott af okkur kæru vinir.

Nonni og Sigga.


Byrjun mars - sumarbústaður o.fl.

Síðustu  helgi fórum við í sumarbústað nálægt Laugarvatni. Heitur pottur og veður eins og það gerist best að vori. Við keyptum hljóðbókina Góða dátann Svejk - hvíldum okkur og gengum. Elli og Lilja frá Ísafirði komu í heimsókn og fóru í pottinn með okkur og borðuðu snarl um kvöldið. Þetta var mjög hugguleg helgi sem endaði í höfuðbeina og spjaldhryggsmeðferð hjá Elínu á Selfossi.

Annars gengur lífið sinn vana gang. - Við erum að plana ferð til útlanda - Englands og Portúgal í byrjun júní og Nonni reiknar með að fara upp á hálendið í myndaferð um næstu helgi. Við erum að keppast við að hafa það gott.

Kær kveðja elsku vinir og ættingjar.

Nonni og Sigga.


Leikhúsferð og fleira á konudaginn

Við höfum aldeilis haft nóg að gera síðustu daga. Sigurgeir sonur Nonna, kona hans Elín og börnin Pétur, Unnur og Sandra komu til Íslands. Þau borðuðu hjá okkur bæði á þriðjudagskvöldið og laugardagsmorgun áður en þau flugu út. Þá hefur Nonni farið í ljósmyndaleiðangur upp á Hellisheiði til að ná frostmyndum við borholur Orkuveitunnar. Ein myndanna verður sýnd í Kringlunni frá og með fimmtudeginum næsta. Þá varð Nonni 55 ára og hefur verið stanslaus gestagangur í tvo daga vegna þess. Eftir að Sigurgeir fór komu systkini Nonna og systkinabörn og Kári og Guðrún, Steini (Icerock) og mamma Nonna. Nú í dag hafa komið Halli - systkinabarn Nonna og fjölskylda (kona og þrjú börn) Habba systir Nonna og Friðrik hennar maður og Sigrún og Elli vinafólk og Kristján Einar sonur Siggu. Við höfum farið tvisvar í leikhúsið og séð Sölku Völku 16. feb og daginn eftir á Túskildingsóperuna. Ása systir Siggu og dóttir hennar Kristín fóru til Bretlands og gistu bæði fyrir ferðina og eftir hjá okkur. Steini hefur aðstoðað Nonna við að vinna mynd fyrir sýninguna og lét hann prenta hana með sinni. Sýndi hann okkur árangurinn fyrir veisluna og erum við ánægð með árangurinn.

Nóg í bili.

Kær kveðja kæru vinir.

Nonni og Sigga.


Fimmti feb 2006

Nú í dag á hann Kristján sonur Siggu 23ja ára afmæli. Hann er fluttur að heiman fyrir nokkru, býr í leigusambýli með þremur öðrum ungmennum á svipuðu reki.

Kristján kom í mat í kvöld ásamt Hrafnhildi mömmu Nonna og Ellu og Sævari, vinafólki okkar. (Ella er æskuvinkona Siggu frá Dalvík).

Nonni fékk tvo boðsmiða í Smárabíó hjá verslun Odda. Við nýttum þá þannig að við buðum vinum okkar á bíó þ.e. Ella og Sigrúnu en þau höfðu boðið okkur slíkt fyrir stuttu.

Í gærkvöldi sáum við "Ég er mín eigin kona" í Iðnó. Eini leikarinn er Hilmar Snær og bregður hann sér í tugi gerfa. Sýningin stóð frá 8 um kvöldið  til korter í ellefu með tuttugu mínútna hléi. Það var alveg ótrúlegt hvað hann gat haldið dampi í svo löngu stykki.

Nú er gróður hérna á pallinum okkar byrjaður að taka við sér eins og kominn væri maí.  Hitinn er kominn að frostmarki eftir hlýindakafla. Vonandi lífir gróðurinn af.

Eftir að hafa verið í hálfgerðu hýði yfir veturinn erum við byrjuð að fara í gönguferðir og sund. Í sundi látum við nuddstúta í heitupottunum vinna á allri vöðvabólgu og þreytu og komum endurnærð út.

Það er semsagt allt gott hérna í Klettásnum. Sigga saumar og Nonni vinnur í myndum - alltaf nóg fyrir stafni.

Bless í bili kæru vinir

Nonni og Sigga.


Byrjun febrúar 2006

Það er komið nýtt ár og jól og dimmir haustmánuðir síðan við skrifuðum síðast. Hann Sigurgeir sonur Nonna hafði á orði að líklega værum við enn á Netkaffinu sem við enduðum seinustu færslu.

Yfir aðventuna og jólin var húsinu breytt í jólahús. Teknir voru svona 4 rúmmetrar af jólaskrauti í kössum og nokkuð af lausu dóti. Myndir voru teknar af veggjum og settar upp útsaumsmyndir sem Sigga hefur búið til seinustu 20-30 árin.

Vinkona Siggu benti á hana og kom blaðakona Morgunblaðsins og ritaði grein um handavinnukonuna Siggu. Hún fékk nokkrar hringingar í framhaldinu m.a. beiðni um kennslu. Auðvitað stangaðiis það á við vinnuna hennar svo hún þáði ekki boðiið.

Annars gengur líðið sinn vana gang. Nonni er í Fókus og hann er í karlakórnum. Mikill tímii fer í myndvinnslu. Nú er verið að vinna úr afrakstri sumarsins og einnig hefur hann farið nokkrar vetrarferðir.

Þá er það að rækta vini og ættingja. Mamma Nonna kemur yfirleitt á Sunnudögum, Systkinin skipta með sér dögum vikunnar til að hafa tilbreytingu fyrir hana. Þá koma Auðunn sonur Nonna og Súsanna kærasta hans. Kristján fór að heiman fyrir jólin og kemur reglulega við. Ekki búinn að gleyma gamla settinu. Þá er að fylgjast með Borgarholti.com og hafa samband. Fara til og taka á móti Kára föðurbróður Siggu og Guðrúnu konu hans. Gabríellu stjúpdóttur Siggu og fjölskyldu og svona mætti lengi telja.

Við ætlumekki að þreyta ykkur með meiru í bili.

Vonandi kemur næsta færsla eftir styttri bið en þessi .


Sigga og Nonni.++


« Fyrri síða

Um bloggið

Dagbók Klettássfólksins

Þetta er dagbók Jóns Sigurgeirssonar og Sigríðar Harðardóttur Klettási í Garðabæ. Henni er haldið út vegna fjölmargra vina og ættingja sem eru fjarri okkur í vegalengdum mælt.

Höfundur

Sigríður Harðardóttir
Sigríður Harðardóttir

Bloggvinir

Jan. 2025
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • IMG 3267 edited 1
  • 20080524 IMG 2486
  • 20080524 IMG 2512
  • 20080524 IMG 2553
  • 20080524 IMG 2553

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (23.1.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 2
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 2
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband