Þriðjudagur, 8. ágúst 2006
Verslunarmannahelgin
Við vorum ákveðin í því að aka ekki í halarófu eftir öllum hinum út á land um verslunarmannhelgina. Ekki fór svo að við færum ekkert eins og við ætluðum okkur en meira um það síðar.
Nú er verslunarmannahelgin afstaðin og þeir sem hafa verið afvelta eða sauðdrukknir á einhverri útihátiðinni að skríða til síns heima.
Sigureir og fjölskylda voru hérna um helgina en þau taka við íbúðinni í New York á föstudaginn. Stelpurnar höfðu verið fyrir austan fjall hjá ömmu Hebu og Kristjáni Geir nokkra daga. Við ætluðum hins vegar að hafa kvöldverðarboð á mánudagskvöldið. Okkur fannst tilvalið að bjóðasts til að sækja stelpurnar og sjá í leiðinni húsið sem þau búa í á Stokkseyri en Margrét Frímansdóttir byggði húsið fyrir nokkuð mörgum árum síðan en seldi fljótlega.
Maður hafði heyrt heilmikið um þetta hús. Það var sagt byggt við sjóvarnargarðinn og ekki bjóst maður við því að þar yxi nokkur gróður. Það kom hins vegar á óvart þegar við nálguðumst staðinn að umhverfis húsið virtist heilmikil gróðurvin. Kristján Geir upplýsti að garðurinn hefði hlotið verðlaun á sínum tíma. Umhiriða garðsins var ekki lengur með því móti að hann hlyti verðlaun. Hann var orðinn svolítið viltur. Fjöldi tegunda var samt gifurlegur og allt í blóma. Hann var þvi ákaflega skemmtilegur. Kristján sýndi okkur umhverfið. Við gengum upp á sjóvarnargarðinn, garðinn og skoðuðum húsið hátt og lágt. Heba var ekki búin að koma öllu dótinu sínu fyrir. Engu að síður var mjög hlýlegt og skemmtilegt að koma þarna, húsið stórt og mikið og nægilegt rými fyrir allt. Marta dóttir Kristjáns hafði komið sér fyrir í tveimur herbergjum og hafði svefnherbergi og skrifstofu. Húsið er annars hæð og ris. Timbur einingarhús frá Danmörku. Á efri hæðinni eru svefnherbergi, baðherbergi og hol. Eitt hverbergið hefur Kristján sem skrifstofu. Á neðri hæðinni er stórt eldhús hol og stofur. Svalir eru fyrir framan hjónaherbergið á loftinu og var Kristján að skipta um gólf . Svalirnar snúa að sjónum og veðurálagið of mikið fyrir furu. Hann var því að leggja harðviðargólf á svalirnar.
Eftir að hafa skoðað hús og umhverfi fengum við pönnukökur sem Heba hafði bakað á meðan. Við höfðum lagt á stað laust eftir hádegi og lögðum af stað til baka um þrjúleytið til þess að losna við mesta umferðarálagið. Fátt var um bíla á þrengslaveginum. Ekki virtist meira en venjuleg helgarumferð á Hellisheiði og rendum við heim á um 90 km. hraða í halarófunni sem við fylgdum.
Þegar í bæinn var komið keyrðum við Unni á Þinghólsbrautina til afa Péturs þar sem vinkona hennar vildi hitta hana. Sandra fór hins vegar með okkur heim. Sigga trylaði fram fiskisúpu og kom fjölskylda Sigurgeirs ásamt Pétri Guðfinns í mat.
Sigurgeir og fjölskylda fljúga síðan í dag til New York. Nú er komninn venjulegur vinnudagur. Hiti hefur lækkað niður í 10 gráður í stað 13. Það er logn og millt veður en rigning.
Elsku vinir og ættingjar.
Hafið þið það alltaf sem best og endilega skrifið í gestabókina þegar þið lesið þetta.
Ykkar Nonni og Sigga.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Fimmtudagur, 3. ágúst 2006
Fimmtudagurinn fyrir verslunarmannahelgi.
Hér á meginlandinu Íslandi (andstætt við eyjarnar sem kendar eru við Vestmenn) er að koma dæmigert verslunarmannahelgarveður. (langt orð) Það er semsagt helli rigning. Maður getur svo sem ekki kvartað. Síðustu daga hefur verið einmuna blíða farið yfir tuttugu stigin hér á mölinni sem þykir gott. Enn heitara hefur verið fjær sjónum.
Nonni fylgist með vexti eplanna beggja í garðinum á hverjum degi. Honum finnst þau vera að vaxta en hann er ekki viss. Til að auka von um einhverja ætilega uppskeru fækkaði hann þeim úr þremur í tvö.
Nú er síðari lyngrósin búin að missa öll blómin, nema kannski einhverjarar títlur sem sjást ekki nema færa til lauf hennar. Gulu rósirnar eru í fullum skrúða og þær rauðu eru byrjaðar að sýna fegurð sína.
Eins og við höfum nefnt þá er verslunarmannahelgin að bresta á. Það er einkennilegt hvað menn verða vitlausir og rjúka í halarófum út úr bænum. Það er fátt sem mér þykir leiðinlegra en að láta einhverja lestarstjóra stýra hvernig maður ekur og ekki er það afslappandi í sumarleyfinu að fara fram úr heilli bílalest til þess eins að hanga aftan í þeirri næstu. Þá þykir okkur fátt leiðinlegra en drukknir menn ekki síst drukknir Íslendingar. En fyrir mörgum er þetta toppurinn á tilverunni þ.e. að hanga í halarófu til þess eins að hanga utan í fullu fólki jafnvel dauðadrukkinn sjálfur þegar á leiðarenda er komið.
Það er fátt svosem nýtt hjá okkur. Sigurgeir sonur Nonna ætlar að koma hingað í stutta heimsókn og Elín kona hans og börnin hættu við að fara til NY. Það verður því væntanlega frá meiru að segja eftir helgina
Læknir Nonna hefur gefið honum ný ónæmisbælandi lyf sem hugsanlega lækna hann alveg á svona sex mánuðum. Vonandi fylgja ekki eins slæmar aukaverkanir og af sterunum sem hann hefur tekið. Hann er bjartsýnn og er ánægður að reynt sé að gera eitthvað.
Kæru vinir og ættingjar um allan heim.
hafið þið það alltaf gott
Ykkar Nonni og Sigga.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 16:03 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Mánudagur, 31. júlí 2006
Júlílok
Það er milt í veðri hér í Klettássnum eins og hefur verið síðari hluta júlí mánaðar. Það hafa komið þó nokkrir sólardagar alveg dýrlegir eins og ég hef sagt ykkur frá. Samt sem áður eru menn að kvarta yfir sumrinu. Það lét að vísu á sér standa. Síðari hluta júní og fyrri hluta júlí var maður orðinn vondaufur. Þá sagði Nonni við Siggu: " Við getum ekki kvartað þar sem við gátum keypt okkur sumar" þe. farið til útlanda.
Sumarið er svo ósköp stutt hér á Fróni að maður verður að njóta þess sem þó er ennþá betur. Ég sé á gróðrinum, hvernig hann braggast að við getum ekki kvartað. Enn sér á blöðum eftir vorhretið en það sem síðar hefur sprottið er gott.
Ég tala um veðri hér í Klettás. Það er ekki af ástæðulausu því það getur verið hávaðarok í Kópavoginum þó það sé lygnt hér. Þannig var það a.m.k. í gær.
Við keyptum okkur forláta álstóla í Rúmfatalagernum í gær. Eftir það fórum við að undirbúa veislu. Hingað komu 9 manns þe. Elín tengdadóttir Nonna, Unnur Ósk dóttir hennar og Sigurgeirs, Auðunn sonur Nonna og Súsanna kona hans með Knút litla son þeirra, Pétur Guðfinnsson pabbi Elínar, Kristján Geir æskuvinur Nonna ásamt konu sinni Herborgu, fyrri konu Nonna og síðast en ekki síst Hrafnhildur mamma Nonna. - Sannkallað fjölskylduboð til heiðurs þeim hluta Sigurgeirsfjölskyldu sem er hér á landi.
Sigga tryllaði fram ljúffengan fiskrétt og borðað var bæði inni og úti - standandi borðhald. Á eftir var skyrkakan hennar Siggu..
Boðið stóð stutt vegna tónleika Sigur - Rósar á Klambratúni. Eftir það komu Sigrún og Elli vinir okkar í heimsókn.
Á laugardaginn komu Hrafnhildur systir Nonna ásamt Friðrik manni sínum hjólandi í heimsókn og ef við förum enn aftur í tíman þá borðuðu Elín, Unnur Ósk, Pétur Guðfinns og Hrafnhiludr eldri hér á fimmtudaginn.
Annars allt gott kæru vinir og ættingjar.
Hafið þið það alltaf sem best
Með kærri kveðju frá Klettásfólkinu.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 15:02 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Þriðjudagur, 25. júlí 2006
Sumarið á fullu
Maður var orðinn vondaufur með sumarið. Veðurfræðingarnir sögðu frá snemmkominni haustlægð og svo brestur það á með þvílíkri blíðu. Hægt hefur verið að spóka sig í stuttbuxum og stutterma bol og sólin hefur leikið við landsmenn flesta daga. Gróðurinn hefur þó fengið sitt svona inn á milli. Síðasta fimmtudag var alveg súper veður. Við fórum niður í bæ og borðuðum úti um kvöldið á Kaffi Reykjavík. Við rétt kræktum í borð með því að sjá það út þegar við keyrðum fram hjá og Sigga þaut út úr bílnum til að góma það. Miðbærinn var sneisa fullur eins og á sautjánda júní. Austurvöllur fullur af fólki, sitjandi á kaffistöðum, á gangi eða liggjandi í grasinu.
Þá hafa stelpurnar hans Sigurgeirs glatt okkur með nærveru sinni. Sandra dvaldi hjá okkur nokkra daga og Nonni fór með stelpurnar í sund. Pétur Þór er fyrir norðan hjá afa sínum og ömmu. Nú er Elín komin til landsins og dvelur hún ásamt stelpunum hjá föður Elínar.
Á þriðjudaginn fyrir sléttri viku voru þau í mat stelpurnar og Pétur (faðir Elínar tengdadóttur Nonna) og mamma Nonna (Hrafnhildur).
Á sunnudaginn var kom Hrafnhildur aftur í mat ásamt Kára föðurbróður Siggu og Guðrúnu konu hans.
Okkur hefur lengi langað í góða geymslu undir sessur í útistólana og jafnvel stólana sjálfa. Nonni var búinn að sjá viðarskýli sem okkur langaði í en fanst heldur dýrt. Við tókum okkur til og ætluðum að kaupa einhverjar kistur í Rúmfatalagernum þó okkur þætti þær frekar veigalitlar. Þegar við komum þangað var starfsmaður að setja saman plastskáp einmitt eins og við vildum hafa geymsluna. Það var ekki að sökum að spyrja við keyptum skápinn á staðnum. Ekkert verð var á honum því hann hafði fundist við hreinsun á lager og ekki verið skráður í kerfið. Okkur var boðinn hann á rúmlega kistuverði og var það mjög hagstætt. Þegar við vorum búin að ganga frá greiðslu var annar að falast eftir að kaupa sýningareintakið sem var verið að setja saman. Aðeins voru til þessir tveir skápar. Við vorum því heppin að ná þeirri sem við fengum.
Nú er síðari alparósin á pallinum í fullum blóma. Litir blómana eru aðeins byrjaðir að fölna. Þá tekur við gamaldags fyllt rós (ekki te rós) og eftir henni byrja rauðar rósir að blómstra. Eplatré á pallinum er með þrjú epli og verður spennandi að sjá hvað þau ná að stækka fyrir haustið.
Sigga hælir þvottahúsinu í hvert sinn sem hún setur í vél. Það tók Nonna langan tíma að púsla því saman þó þvo hefði mátt þvotta nærri allan tíman. Það er mikill munur að þurfa ekki að bogra við að setja í vélarnar. Nóg er af þessum þvotti þó við séum aðeins tvö í heimili.
Nonni hefur verið latur að taka myndir upp á síðkastið. Hann og Steini vinur hans eru að plana ljósmyndaferð, hugsanlega um næstu helgi.
Nú er komið nóg í bili kæru vinir og ættingjar.
Njótið lífsins meðan það endist.
Nonni og Sigga.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Þriðjudagur, 11. júlí 2006
10. júlí - Miðsumarsvæta
Yfir sumarið þá velti ég því stundum fyrir mér hvað það er stutt. Það er varla nema tveir mánuðir, frá miðjum júní til miðs ágústs. Stór hluti af þessum tima er rok og rigning. Þannig eru æði fáir dagar sem eru sól og blíða. Við kunnum hins vegar betur að njóta þeirra en aðrir og klæðum okkur barapeysur yfir há sumarið.
Við ósköpumst yfir ástandinu, bilinu milli ríkra og fátækra sem ekkert var en er orðið verulegt vandamál, þá sérstaklega hvað þeir sem minnst hafa hafa lítið. Við ósköpumst yfir kvótanum sem sumir hafa grætt á en við eigum öll. Við ósköpumst yfir eyðslu í sendiráð og veislur þegar ekki er hægt að greiða fyrir bráðnauðsynlega þjónustu í heilbrigðiskerfinu. Við ósköpumst yfir því að enginn skilji málið okkar og kostnaðinum við að halda því uppi.
Þrátt fyrir allt það neikvæða er gott að vera Íslendingur. Hér eigum við rætur í fjölskyldu og vinur, þekkingu á land og sögu. Við höfum ræktað með okkur sérstakan smekk sem leitast er við að þjóna. Við borðum kók og prins og lindusúkkulaði. Höfum heimsins bestu páskaegg og sumir éta jafnvel súrmat og hákarl. Allt er þetta partur af því að vera Íslendingur, hluti sem við hreinsum ekkert af okkur hvert sem við förum um heiminn.
Við fórum í giftingu systursonar hennar Siggu, norður á Akureyri. Þar fundum við fyrir tengslunum við ættingjana og tókum þátt í gleði brúðhjónanna. Fjölskyldan hjálpaðist að að gera þessa athöfn vel úr garði og hina skemmtilegustu. Skemmtanir i veislunni voru fram færð af ættingjum og vinum og eins tóku þeir þátt í matarundirbúningi og skreytingum. Þessi samheldni og samhjálp er svo mikilvægur þáttur í rótum okkar eitthvað sem við getum ekki flutt neitt annað og tengir okkur órjúfanlegum böndum þessu kalda, dimma og hráslagalega skeri.
Við fórum norður á föstudegi og komum norður um kvöldmatarleitið. Við gistum á Dalvík hjá foreldrum Siggu um nóttina og fórum til Sævars og Ellu um hádegisbilið á laugardaginn. Þau eru ný fltutt í einbýlishús á Akureyrir. Það var nærri fullbúið að innan en garður og múr á húsi eftir. Okkur þótti heimili þeirra mjög glæsilegt og mikill munur á því að´búa í blokk í Reykjavik og þessu glæsilega einbýlishúsi á Akureyri.
Eftir huggulegan eftirmiðdag með þeim hjónum fórum við í veisluna sem nefnd hefur verið. Matur hófst um kl. 8 eftir fordrykk, matarmikil fiskisúpa. Um hálf tíu var svo aðalrétttur. Um þrjá rétti var að velja - tveir fiskréttir og kjötréttur og síðan um miðnætti voru kökur - marenge og súkkulaði. Við Sigga reyndum að fara snemma en kl var langt genginn eitt þegar við loksins vorum búin að matast.
Við lögðum af stað til Reykjavíikur þegar kl. vantaði korter í átta um morgunin eftir. Með því að fara svona snemma sluppum við við umferðina sem var mjög mikil að sögn lögreglu síðar um daginn. Kalt var í veðri á leiðinni allt niður í 5 stig a heiðum. Það hittnaði strax og suður kom og voru 16 stig í Reykjavik þegar við komum þangað um kl. 13. Um kvöldið komu Auðunn og fjölskylda og Hrafnildur mamma Nonna til okkar í kvöldmat. Svín grillað með ýmis konar meðlæti.
Nóg í bili kæru vinir og ættingjar.
Harfið þið það alltaf gott
Ykkar
Nonni og Sigga.
Bloggar | Breytt 25.7.2006 kl. 21:27 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Þriðjudagur, 4. júlí 2006
Þjóðhátíðardagur Bandaríkjanna
4. júlí og 14. júlí eru merkis dagar í þróund þeirra mannréttinda og lýðræðis sem við þekkjum. 4. júlí er minnst sjálfstæðisyfirlýsingar Bandaríkjanna (1776) og 14. júlí er Bastilludagurinn en árás á það allræmda fangelsi er upphaf Frönsku byltingarinnar 1789.
En það er semsagt kominn 4. júlí. Fyrstu árin sem Nonni bjó á Hringbrautinni svona fyrir fjórðung úr öld síðan, þá héldu Dennis og Ingibjörg sem þá voru nágrannar alltaf garðpartý þennan dag. Það voru skemmtillegar veislur. Það var líka alltaf sólskin og blíða í þá daga!!.
Nú rignir hins vegar á Fróni sem alldrei fyrr. Menn sætta sig við þetta þar sem hvorki er kalt eða rok.
Sigga hefur verið að æfa sig á nýju saumavélinni. Hún tók sig til og stytti gardínukappa í stofunni. Í stað þess að klippa efnið þá tvöfaldaði hún það. Það var tvöfallt fyrir og er nú orðið fjórfalt. Þetta var sodan hýalín að það ber ekkert á því.
Nonni hefur hins vegar verið að setja upp innréttingu þvottahúsið. Við skruppum niður í IKEA og fengum okkur skápa undir þvottavél og þurkara ásamt plötu, vaskaskáp og skúffuskáp þar við hliðina og tvo kústaskápa. Þetta hefur tekið vikuna að púsla þessu saman og mála herbergið. Kristján sonur Siggu hefur hjálpað við pípurnar.
Nonni er kominn yfir erfiðasta hjallan í þessu dæmi en tímafrekar innansleikjur eru eftir. Innifalið í þessu er að sníða til borðplöturnar, gera gat fyrir vask og krana og festa í plötuna. Þetta er ef til vill ekkert flókin smíði en engu að síður full nóg fyrir óvana.
Við höfum að venju fengið heimsóknir - m.a. spilakvöld með Ella og Sigrúnu með einni sunnudagakrossgátu sem eftirmála og Ella og Birgir á Selfossi litu við í Kaffi.
Palli og Gabríela eru komin frá Kanaríeyjum og litum við við hjá þeim í vikunni, við heimsóttu Kjartan (bróðir Nonna) og Dísu og skoðuðum hvernig gengur með að innrétta háaloftið hjá þeim.
Framan af æfi létu þau sér nægja þriggja palla raðahús í Fossvoginum en eru nú flutt í stærðar einbýlishús við Elliðavatn. Á því er mikið ris sem hefur verið óinnréttað. Nú hefur Bjarni sonur þeirra lokið námi í grafískri hönnun og hyggur á framhaldsnám erlendis. Hann ætlar ekki strax út heldur hyggst hann búa þarna á loftinu hjá foreldrunum ásamt konu og barni. Þetta þýðir að farið var út í að innrétta loftið. Súðin er panleklædd og veggir úr gipsplötum. Innréttingin var langt komin og virtist hin ágætasta smíð. Kjartan vinnur að henni ásamt sonum sínum. Það skemmtilega við að gera svona sjálfur að maður hefur tækifæri að kaupa alls kyns fín verkfæri. M.a. fjárfesti Kjartan í forláta borðsög og loftpressu. Loftpressuna notar hann til að knýja naglabyssu eða heftibyssu sem festir borðin í loftið.
Alparósin sem tók á móti okkur í fullum blóma þegar við komum heim er að fella blóm. Sú rós er nokkurra ára orðin um 70 cm að ummáli og sást varla í laufið fyrir blómum. Nonni keypti aðra í vor, setti í stærri pott með súrum jarðvegi og nú launar hún greiðan með því að taka við. Þegar sú gamla er fallin ætlar sú unga að skarta sínu fegursta.
Á sunnudaginn (nú er þriðjudagur) fórum við á kaffihús og kringluráp með Hrafnhildi mömmu Nonna eins og oft áður. Hún þreytist voða hratt á slíku. Maður sér sársaukann í andliti hennar í lokin. Hún kvartar samt aldrei og segir að hún verði að hreyfa sig. (Hún er öll úr lagi gengin vegna beinþynningar. ).
Verðið þið nú sæl elsku vinir og ættingjar og hafið þið það alltaf gott. Fyrirgefið hvað það er langt síðan við skrifuðum síðast.
Ykkar
Nonni og Sigga
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Sunnudagur, 25. júní 2006
Komin heim
Í dag er sunnudagurinn 25. júní. Við byrjuðum daginn með göngutúr, þá keyptum við blóm á leiðið hans kristjáns heitins og settum þau niður. Við erum vön að gera slíkt fyrir sjómannadag en það tafiðist vegna kulda og svo vegna ferðarinnar okkar.
Við keyptum Cybris tré til að hafa í pottum við innganginn en þau sem lifað höfðu af veturinn þoldu ekki vatnsleysi meðan við vorum í burtu. Helga Haraldsdóttir, vinkona Ellu Hönnu býr hér rétt hjá. Var hún í göngutúr með barnabarn í kerru, stoppaði við og þáði svart og sykurlaust kaffi. Þá fórum við að hafa okkur til fyrir næsta dagskrárlið sem var veisla í tilefni útskriftar Helgu Guðrúnar Friðriksdóttur, Sophussonar og Helgu Jóakimsdóttur. Kristján kom með okkur í veisluna.
Í gær heimsóttum við Auðunn, Súsönnu og Knút þór. Um kvöldið kom Hrafnhildur mamma Nonna í mat og horfði með okkur á DVD disk sem við höfðum keypt. Daginn sem við komum að utan 23. fórum við í heimsókn til Ella og Sigrúnar.
Það var gaman að sjá hvað hann Knútur Þór er orðinn stór. Hann fæddist mánuði fyrir tíman 12. apríl og hefur nú náð fullri þyngd miðað við fullburða börn. Hann nærist nærri eingöngu á brjóstamjólkin sem Súsanna segir að sé hreinn rjómi.
Elsku vinir og ættingjar. Hafið þið það gott það höfum við.
Ykkar
Nonni og Sigga
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Sunnudagur, 18. júní 2006
Daginn eftir þjóðhátíð
Það var reglulegt þjóðhátíðarveður hér í Greenwich í gær 17. júní. Fólkið drífur sig út í Greenwich park og þar er ísbíll og sannkölluð þjóðhátíðarstemming þó enginn fatti að það sé ekki bara venjulegur laugardagur. Efst í garðinum er rennislétt rautt malbik sem hjólaskautaliðið notar óspart. Margir hafa lítil tjöld með sér grill og hvaðeina til góðrar lautarferðar eins og það kallast víst á íslensku.
Í fyrradag (16. júní) fórum við niður í miðborg Greenwich á markað og skoðuðum gamallt te skip Cut Sark Það var byggt skömmu eftir miðbik þar síðustu aldar og var einstaklega hraðskreytt. Mikilvægt var að hafa slík skip hraðskreið til að koma teinu sem fyrst á markað. Þegar það hóf siglingar var ekki búið að grafa Suesskurðinn. Leiðin suðurfyrir Afríku var svo löng að ekki borgaði sig að sigla gufuskipum. Kolafarmur til slíkrar ferðar hefði tekið nærri allt lestarrýmið. Síðan var Suesskurðurinn grafinn og komið fyrir kolahöfnum á leiðinni og í Kína. Eftir það urðu dagar þessara hraðskreiðu seglskipa taldir. Skipið var selt til Portúgal fyrir rúm 2000 pund og nokkrum áratugum síðar var það keypt aftur til Englands fyrir rúm 3000 pund. Það var gert að skólaskipi og þjónaði það sem líkt fram yfir seinustu heimstyrjöld þegar það fékk legstað í þurrkví hér í Geenwich.
Fyrir dyrum standa miklar endurbætur á skipinu sem eiga að hefjast sumarið 2007. Að sjálfsögðu fylgdi ferðiinni að setjast inn á kaffihús og drekka ískaffi og ganga síðan í gegnum Greenwich garðinn heim í Highmore road. ´
Í gær fór Elín með krakkana til NY í próf fyrir skóla þar. Við erum því í hundspössun og byrja dagarnir og enda með göngutúr með Castro og síðan höfum við aðra hluta dagsins frjálsa fyrir okkur. Eftir gönguferð i garðinum fórum við niður í Blackheat bæinn og fengum okkur að borða á Café Uno sem er Ítalskur veitingastaður.
Í dag fórum við niður í miðborg Lundúna og gengum þar um stund - frá Charing Cross. Fyrir framan National Gallery var Indversk hátíð. Torgið var fullt af Indverjum og Englendingum klæddum indverskum búningum. Bænasamkomur við tignun Cristna guðsins voru þar, dansatriði og langar biðræðir eftir mat, litrík klæði og tjöld. Við fórum síðan að St. James Park og eftir Whit hall að Charing Cross og til baka heim. Lestin sem við tókum til baka virðist hafa verið hraðlest og stoppaði ekki á Mase Hill stöðinni sem næst er Highmore road. Við urðum því að taka leigubíl frá næstu lestarstöð. Úthaldið er nú ekki meira en svo að göngutúr í garðinum með Castró og stuttur göngutúr niður í bæ er alveg nót fyrir okkur. Þá er hægt að taka því rólega hér á Highmore road. Hvíla sig - horfa á íslensku fréttirnar í beinni á netinu hekla (það gerir Sigga) og lesa einhvað í bókunum sem Nonni hefur keypt sér. Hér eru fjöldi bókabúða sem selja bækur á 2 pund hverja. Nonni hefur keypt heildar verk Oscars Wilds, - The Nations Favorite Poems og Rights og Man eftir Thomas Paine. Thomas Paine var uppi á tímum frönsku byltingarinnar og boðaði ýmisleg félagsleg réttindi öld áður en það kom til í Bretlandi.
Þetta er nóg í bili elsku vinir og ættingjar.
Hafið þið það öll gott hvar sem þið eruð
Ykkar Nonni og Sigga.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Föstudagur, 16. júní 2006
Daginn fyrir þjóðhátíð
Við vorum að burðast heim með mat fyrir vikuna. Nú fer Elín til NY í fyrramálið. Við verðum ekki á bíl og því betra að fylla allar hyrslur af mat. Ekkert gaman að bera vatnsflöskurnar þessa kílómetra upp í móti sem eru í næstu hverfisverslun.
Börnin eru í skólunum. Próf eru búin svo það er ekki mikið fyrir þau að gera, sérstaklega er lítið fyrir Pétur. Hann var þriðji hæsti í bekknum sínum í frönsku. Það er nú sérstaklega gott þar sem hann hefur lært hana í eitt og hálft ár á móti því að félagar hans byrjuðu að læra hana á fyrsta ári í skóla.
Sandra les fyrir okur á kvöldin heimaleisturinn sinn í skólanum. Hún er í 6 ára bekk og ætti að vera að byrja að lesa en er fluglæs og les heilu bækurnar á hverjum degi. Það er ákaflega gaman að heyra breska framburðinn hennar.
Á miðvikudaginn tókum við lest alla leið yfir í Suður Kennsíngton sem er vestan við miðborgina. Fyrst tókum við yfirborðslest yfir í City og síðan neðanjarðarlest til Kensington. Við skoðuðum hluta vísindasafns sem þar er. Það er bæði stórt og margskipt og tekur marga daga að skoða það allt. Við skoðuðum náttúruhluta þess með risaeðlubeinum, uppstoppuðum fuglum og vistkerfiskennslu hluta. Það var bæði gaman að ferðast þangað og skoða safnið. Í gær fórum við niður í bæ hér í Greenwich og borðuðum og sportuðum okkur um stund og gengum síðan heim. Elín ók okkur niður eftir og var með okkur mestan hlutan af tímanum. Við skoðuðum m.a. markað sem verður um helgina. Búið var að setja upp bása og nokkrir voru byrjaðir að selja..
Daginn sem við fórum í vísindasafnið var dumbungur en mátulega heitt. Við fórum með regnhlíf en þurftum ekki nað nota hana.
Nú er sólskin og hiti og spáð hlínandi það sem eftir er. Það er hádegi og best að fara að krækja sér í orku til að geta haldið áfram að hafa það gott hér í Greenwich.
Kæru vinir og ættingjar
hafið þið það gott hvar sem þið eruð.
Ykkar Nonni og Sigga.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Miðvikudagur, 14. júní 2006
Í ró í London
Það er óhætt að segja að við séum í góðu yfirlæti hér í London. Það er yndislegt að vera hér í Highmoreroad á heimili Sigurgeirs og Elínar þo Sigurgeir hafi aðeins komið hér yfir helgina frá New York. Hitinn hefur verið mikill, næstum of mikill. Þegar maður heyrir hins vegar hitatölurnar frá Íslandi, allt niður að frostmarki þá nýtu maður bara veðurblíðunnar 32 stig eru sko betra en 2-10. Það er dumbungur í dag og það komu hitaskúrir í gær jafnvel svo miklar að það var eins og vera undir sturtu á fullu. Það er´mjög gott að hér væti svolítið því farið er að gæta vatnsskorts og mönnum ráðlagt að spara vatn eins og kostur er. Ekki má þvo bíla með slöngu og ekki á að vökva garða.
Sigga heklar og heklar. Hún er nú í því að hekla mátulegar pakningar utan um Tissú- pakka. Sandra bað hana að hekla handa sér tösku og hannaði Sigga eina slíka í hvelli og daginn eftir var tilbúið heklað dömuveski með heklaðri tölu á lokinu. Glæsilegt.
Við höfum ekkert farið í miðborg London. Við höfum dvalið hér í Highmoreroad - dundað okkur við hekl, lestur og sjónvarp - ásamt ferðum á matsölustaði, göngur í Greenwich garðinum og kík í búðir niður í miðborg Greenwich. Nonni keypti tvær bækur í búð sem selur hverja á 2 pund (um 280 kr. eftir nýjasta og versta genginu.). Önnur var gagnrýni á Bandaríkin og hin var mótleikur við píkusögur fyrir karlmenn. (tippasögur). Í fyrri bókinni var m.a fjallað um kosningasvindl Bush í Florida og þeirri síðari er fjallað um reðursafnið á íslandi og gerð ítarleg rannsókna á því hvort stærðin skipti máli. Að sjálfsögðu er þetta uppbyggileg lesning sem lætur flesta líða vel með það sem þeir hafa. Nonni notar alltaf tækifærið í útlöndum og kaupir nokkur ljósmyndablöð. Þau sem kosta tvö til þrjú pund hér kosta um 1200 - 1500 kr. á Íslandi. Mörg fyrir verð eins.
Í dag er ætlunin að nota veðrið þ.e. að ekki er allt of heitt til þess að ganga og njóta umhverfisins.
Hafið þið það gott elsku vinir og ættingjar
Kær kveðja frá Greenwich
Nonni og Sigga.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 10:12 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Laugardagur, 10. júní 2006
Komið til London
Á fimmtudaginn áttunda vöknuðum við snemma og vorum lögð af stað frá Stóradal kl. 5:45. (sjá Storidalur.blogspot.com) Við ókum til Porto og tókum þaðan vél til London. GPSinn var bilaður og því þurftum við að treysta á leiðbeiningar sem Páll hafði látið okkur í té. Hann sagði að við gætum varla villst og það var satt. Með hans góðu leiðbeiningum komumst við alla leið áfallalaust. Við komum það snemma að við þurftum að bíða eftir að bílaleigan opnaði. Við ókum inn á svæðið sem bílaleigan hafði og kom nokkru síðar öryggisvörður og rak okkur út. Það hafði einhver spaugari opnað svæðið í heimildarleysi. Hann gerði þetta þó aðeins væru 10 mínútur þar til svæðið átti að opna. Við fórum þvi aðeins út fyrir og inn aftur þegar starfsmenn mættu á staðinn fimm mínútur síðar. Bílaleigan skaffaði okkur ferð út á völl í smárútu. Við vorum nr. 30 í bókunarröðinni og vorum því í forgangi að fara inn í vélina næst á eftir barnafólki. Við völdum sæti í fremstu röð' - við neyðarútgang. Það var því gott að við höfðum næstum engan handfarangur með því við neyðarútgang má ekki hafa neitt undir sætum og lítið pláss er í geymsluhólfunum yfir sætunum.
Ferðin til London gékk áfallalasut. Við tókum hraðlest til Liverpool station Sigurgeir sagði okkur að umferðaröngþveitið væri svo mikið við Liverpool að auðveldara væri að fara með leigubíl frá Standstead flugvelli en að taka hann frá Liverpoolstadion. Þetta var rétt og verðið svipað.
Nú erum við í góðu yfirlæti hjá Sigurgeiri, Elínu og börnunum að Higmoreroad 7 í London. Við komum hingað í fyrradag og höfum notið þess að vera með fjölskyldunni. Sigurgeir kom í gær frá New York sérstaklega vegna komu okkar hingað. Hann vinnur þar mikið enda stefnir fjölskyldan þangað. Nú er unnið að fullu að fá skóla fyrir krakkana og samastað. Ekkert auðvelt er að finna 5 herbergja íbúð á Manhattan eins og þau ætluðuð sér.
Við komum hingað um tvöleitið. Við fórum síðan í blómagarð í Greenwhichpark með fjölskyldunni. Síðan borðuðum við saman í Higmorroad máltíð sem Elín töfrði fram. Við tókum þvi rólega um kvöldið. Á föstudaginn fórum vð í göngutúr um bæinn meðan stelpurnar voru í skólanum. Sigga fékk í bakið og við keyptum handa henni ibúfen pilllur og áburð. Hún er næstum góð núna. Um eftirmiðdag kom Sigurgeir og þau ´tóku okkur á Kínverskan veitingastað þar sem við snæddum fjölda rétta með prjónum. Reglulega flottur staður.
Hér er yfir þrjátíu stiga hiti. Ekki hefur rignt mikið seinustu árin hér í suður Englandi. Vatnskorur er og bannað að sprauta vatni á bíla til að þvo þá en hver fylgist með. Enn er heimilt að vökva golfvelli en bráðum verður það bannað. Á meðan njótum við stöðugs sólskins. Sem betur fer er vindur svo ekki verður allt of heitt. Elin kallaði það jafnvel rok í gær þó ekki teldist það mikið heima á Íslandi.
Elsku vinir og ættingjar
Hafið þið það alltaf gott
Ykkar
Nonni og Sigga.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 11:16 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Mánudagur, 5. júní 2006
Annar í hvítasunnu í Portúgal.
Það er alltaf betra og betra hér í Portugal. Nú er þetta í þriðja skiptið sem við erum hér og erum við byrjuð að þekkja okkur nægjanleg til til þess að geta notið þess. Við erum á litlum Citroen og höfum farið upp í fjöllin með Þórunni og Palla (Í gær), Á ströndina í dag og í fyrradag fórum við að sjá land sem Guðmundur Ragnarsson og frú hafa keypt hér í hundrað km. fjarlægð. Palli sagði það hreint út að honum litilst ekkert á þetta. Stærðin er 5000 fermetrar af skógi, vínvið og villigróðri. Húsið er komið að hruni og er spurningin hvort borgi sig að rífa það eða endurreisa. Nonna leist ekki alveg eins illa á þetta - sá vissa rómantík en samsinnti að mikið verk væri fyrir höndum. Sigga samþykkti álit Palla. Það eru hins vegar ekki við sem eigum að búa þarna og ef þau láta sig dreyma um mikla vinnu við að endureisa stað eyðibýli í Portúgal þá er það þeirra.
Þórunn og Sigga hafa að sjálfsögðu skoðað markaðinn og þó við ætlum að sleppa yfirvikt á heimleiðinni (megum hafa samtals 30kg en vorum með innan við 20 kg. þegar við komum) þá er ekki hægt annað en að kaup pínulítið skraut og svona ýmislegt smávegis.
Hér hefur annars verið yfir 30 stig þegar heitast er á daginn en á morgnanna og kvöldin er skaplegt veður. Það er alltaf hægt að fara í goluna á ströndinni. Grasa vinkona Þórunnar og Palla hefur látið sjá sig enda er hún svolítil útlendingasnobb. Hún hefur einnig boðið okkur inn í lúxusvilluna sína sem er upp á tvær hæðir og kjallari (sem er ekkert niðurgrafinn að framan) ca 170 fermetrar hver hæð. Hurðir eru í ljósum viði. Í kringum glugga og inn í falsinum eru granítflísar. Smekklegar rústbrúnar flísar á gólfum. Okkur finnst valið á flísum á baði aðeins of dökkt og einnig er eldhúsinnréttingin mjög dökk. Þetta er þeim mun bagalegra þar sem Portugalir hleypa helst ekki sólarljósi inn í hús sín og tíma ekki að tendra almennileg ljós.l
Grasa ætlar að hylja gluggana með hvítum léreftsgardínum þó eiginmaður hennar kvarti yfir því að þá komii ekki einu sinni sólarljós inn á kvöldin. Ekki á að vera hægt að draga frá.
Þau heita Matthild og Manuel nágrannar Palla og Þórunnar. Bæði eru þau mjög alþýðleg og inndæl. Manúel hefur ekki sætt sig við að Nonni skilur ekki Portúgölsku og bætir við orðræðuna sæmilegu magni af bendingum þar til Nonni skilur hann.
Við erum búin að læra að segja góðan daginn, gott kvöld, góða nótt, takk fyrir og stór og lítill kaffi með eða án mjólkur. Það er þetta mikilvægasta.
Þetta er nú orðið nóg í bili.
Elsku vinir og ættingjar
Hafið þið það gott
Nonni og Sigga.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Fimmtudagur, 1. júní 2006
Portugal.
Við lögðum af stað í gær í ferðalag til Porugals. Við flugum fyrst til Gatvik í London. Vorum komin þangað kl 15 á London tíma. Svo þurftum við að taka leigubíl þaðan yfir á Standsteðflugvöll. Við vorum 2og 1/2 tíma þangað með leigubíl, það var mikil umferð. Við vorum komin þangað rétt fyrir kl 18. Vélin til Porto átti að fara kl 18.30. en sem betur fer rétt náðum við henni með því að hlaupa restina. Hún fór í loftið kl 19.15. Við vorum komin kl 22.00. Svo fórum við að ná í bílaleigubílinn sem við tókum okkur á leigu í 8 daga. Við vorum komin til Þórunnar og Palla kl 00.30 sem búa í Austurkoti. Við sváfum mjög vel hjá vinum okkar. Það er búið að vera yndislegt veður í dag það fór upp í 33 gráður. Við fórum í bíltúr í dag til Aveiro með Þórunni og Palla. Fórum að skoða æðislegan flottan garð og löbbuðum um þar. Síðan fengum við okkur ís og íste eftir göngutúrinn. Eftir að við komum heim í Austurkot þá gaf Palli okkur gott kaffi. Síðan komu Grasa og dóttir hennar í heimsókn þær eru vinkonur Þórunnar og Palla. Þær borðuðu með okkur kvöldmat. Sem sagt þetta er búið vera yndislegur tími hjá okkur hér í Porugal.
Elsku vinir og ættingar bestu kveðjur.
Sigga og Nonni.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Miðvikudagur, 24. maí 2006
Enn í kulda
Þetta kuldakast sem ég hef sagt frá er það versta í yfir hundrað ár. Að vísu nær snjórinn hér fyrir sunnan ekki nema í miðjar Esjuhlíðar þó nokkur korn hafi fallið hér niður á láglendið.
Við vorum að kveðja Gabríelu og stelpurnar hennar, Margréti sem verður 11 ára 7. júni, Elísabetu Emmu verður 6 ára í ágúst og Krisjönu Ósk sem varð fjögurra ára í janúar.
Þær komu hér og snæddu hjá okkur grillað svínakjöt, pilsur, grænmeti, kartöflur og banana með súkkúlaði. Með grillmatnum var svo salat og kaffi fyrir konurnar á eftir. Eftir matinn var tekinn veiðimaður, horft á DVD mynd og annað eins og hverri líkaði best.
Þegar liðið tók að geyspa var haldið heim. Sólin vermdi pallinn það mikið að hægt var að sitja úti smá stund þó hinum megin í við húsið réði norðan garrinn ríkjum.
Sigga hefur yfirleitt vaknað fyrir allar aldir á morgnanna og er ekkert lát á því. Hún fer ásamt þremur til fjórum samstarfskonum sínum í göngutúr áður en hún hefur vinnu kl. átta að morgni. Á meðan sefur Nonni á sínu græna eyra. Gigtarlæknirinn sagði fátt hvað væri hægt að gera við slitgigtinni sem hrjáir Nonna en hann sagði að hreyfing væri af hinu góða. Nonni á sem sagt að hætta að vorkenna sér og fara að byggja sig upp. Læknirinn sagði að liðirnir væru gerðir til þess að hreyfa sig. Oft hefur reynst vel að byrja slík átök í útlöndum og nú eru aðeins sjö dagar í ferð okkar til Portúgal og Bretlands.
Á morgun er uppstigningardagur eða uppstingingar dagur eins og ´Dani sem ´hingað fluttist hélt að hann héti því íslendingar notuðu þennan dag til þess að stinga upp kartöflugarðana meðan þeir enn nentu slíku. Við stefnum á leikritið "Viltu finna milljón þá um kvöldið. Nonni hefur verið að undirbúa brúðkaupsmyndatöku með Halla systursyni sínum. Spennandi verkefni.
Í gær fór Sigga í jarðarför bróðursonar Stjána heitins fyrra manns hennar.
Jæja elsku ættingjar og vinir
Hafið þið það alltaf gott
Nonni og Sigga.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 22:08 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Um bloggið
Dagbók Klettássfólksins
Nýjustu færslur
- Áfram með ferðina
- 8-12 júlí
- 4. - 8 júlí
- Byrjun júlí
- Komin heim í heðardalinn - fyrsta húsbílaferð ársins
- Sveitaball um helgina
- Fertugsafmæli grautaskólaútskrftar
- Miður maí
- Skemmtileg vika
- Hækkandi sól
- Göngutúrar og hækkandi sól
- Árshátíð og fleira
- Níundi febrúar
- Fyrsti mánuður ársins
- Gleðilegt ár og þökkum liðið
Tenglar
Tenglar
Bloggvinir okkar.
- Vinir í Portúgal Palli og Þórunn í Portúgal. Palli skrifar.
- Sigurgeir sonur Nonna og fjölskylda.
- Palli og Þórunn í Portúgal Palli og Þórunn í Portúgal. Þórunn skrifar.
Bloggvinir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.1.): 1
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 2
- Frá upphafi: 787
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar