Göngutúrar og hækkandi sól

Við fórum í klukkutíma göngutúr í Heiðmörk í dag. Við höfum gengið klukkutíma hvern dag yfir páskana og er það mikill viðsnúningur frá því sem var í vetur. Tíðin hefur verið okkar afsökun en í raun hefðum við vel getað dúðað okkur vel og farið út.

 Nú er giftingin hans Auðuns afstaðin - tókst afbragðs vel Í gærkvöldi var okkur boðið í mat til Ella og Sigrúnar. Eftir matinn leystum við sunnudagsgátu Moggans og spiluðum fram eftir kvöldi. Afbragðs matur og afbragðs kvöld.

Um daginn bjuggumst við við múrara sem ætlaði að laga skemmd fyrir okkur. Hann hafði ekki sagt hvenær hann komi. Nonni var heima og sofandi í rúminu kl. 8 einn morgun þegar bankað var. Nonni er voðalega þurr í augunum á morgnanna og var vart búin að opna augun þegar hann opnar dyrnar og nær ekki að líta í andlit þess sem er á tröppunum. Ert þú múrarinn sagði hann og heyrir svona lágt kurr í manninum Nær Nonni þá  að opna þurr augun nægilega til að sjá milli stýranna í andlit sem hann kannaðist aðeins við.

Á tröppunum stóð Sigurgeir sonur hans sem býr í Ameríku og var sko ekkert væntanlegur. Aðeins í smá skreppi.

Múrarinn kom seinna.

 

Kær kveðja elsku vinir og ættingjar.

 Gleðilega páska

 

Nonni og Sigga.  


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Kæru vinir, gott að heyra að þið eruð hress. Til hamingju með brúðkaup ungu hjónanna, mikið væri gaman að sjá myndir frá atburðinum. Ég hefði viljað sjá andlitið á Nonna þegar hann áttaði sig á því að það var sonur hanns en ekki múrarinn sem stóð við dyrnar, örugglega ánægjulegir endurfundir.

Bestu kveðjur frá Portúgal,

Þórunn og Palli 

Þórunn E Guðnadóttir (IP-tala skráð) 26.3.2008 kl. 19:11

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Dagbók Klettássfólksins

Þetta er dagbók Jóns Sigurgeirssonar og Sigríðar Harðardóttur Klettási í Garðabæ. Henni er haldið út vegna fjölmargra vina og ættingja sem eru fjarri okkur í vegalengdum mælt.

Höfundur

Sigríður Harðardóttir
Sigríður Harðardóttir

Bloggvinir

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • IMG 3267 edited 1
  • 20080524 IMG 2486
  • 20080524 IMG 2512
  • 20080524 IMG 2553
  • 20080524 IMG 2553

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (2.5.): 0
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 17
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 17
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband